Persónuverndarstefna Exos Inventory

Síðast uppfært: 25. september 2026

Um þessa stefnu

Í þessari stefnu er lýst hvernig Exos Inventory smáforritið fyrir iOS og Android („appið“) fer með persónuupplýsingar. Appið er gert af ExOS Labs ehf., Skeiðarvogi 21, 104 Reykjavík („ExOS Labs“, „við“).

Exos Inventory er vinnutól fyrir starfsfólk fyrirtækja sem nota það til að fletta upp, telja og færa birgðir. Það er ekki ætlað almenningi eða börnum. Ekki er hægt að skrá sig sjálfur: kerfisstjóri vinnuveitandans stofnar aðganga.

Hver ber ábyrgð á upplýsingunum

Hvert fyrirtæki sem notar Exos Inventory („viðskiptavinurinn“, yfirleitt vinnuveitandi þinn) hefur sinn eigin netþjón, til dæmis lookup-orninn.exos.is. Viðskiptavinurinn ákveður hvaða upplýsingum er safnað um starfsfólk hans og er ábyrgðaraðili vinnslunnar. ExOS Labs rekur þjónustuna fyrir hönd viðskiptavinarins sem vinnsluaðili.

Ef þú hefur spurningu eða beiðni varðandi upplýsingar um þig skaltu fyrst snúa þér til vinnuveitanda þíns. Þú getur einnig haft beint samband við ExOS Labs, sjá upplýsingar neðst í stefnunni.

Hvaða upplýsingum appið safnar

  • Aðgangsupplýsingar: notandanafn, birtingarnafn og hlutverk (talning, stjórnandi eða kerfisstjóri), ásamt lykilorði og/eða PIN-númeri. Lykilorð og PIN-númer eru aðeins geymd á netþjóninum sem einstefnutætigildi (argon2), aldrei í læsilegu formi. Innskráningartókinn er geymdur í öruggri geymslu símans (iOS Keychain eða Android Keystore).
  • Vinnuskráningar: birgðatalningar og birgðafærslur sem þú gerir, ásamt því hver gerði þær og hvenær.
  • Notkunarskrá: hver uppfletting á vöru eða hillumiða skráir notandann, tímann, kóðann sem var skannaður eða sleginn inn, hvað hann passaði við, hvaða skjár var notaður (Fletta upp, Telja eða Færa) og hvernig kóðinn var sleginn inn (myndavél, lyklaborð eða handskanni, eða val úr leitarniðurstöðum). Kerfisstjórar viðskiptavinarins sjá þetta í notkunarskýrslu.

Notkunarskráin er geymd stutta stund í símanum og síðan send á netþjón viðskiptavinarins. Síminn geymir að hámarki 5.000 ósendar færslur og eyðir þeim sem eru eldri en 30 daga.

Hvernig upplýsingarnar eru notaðar og hverjum þær eru afhentar

Upplýsingarnar eru eingöngu notaðar til að veita viðskiptavininum þjónustuna: til innskráningar, til að skrá birgðavinnu og til að gefa kerfisstjórum viðskiptavinarins yfirsýn yfir notkun appsins.

Birgðaleiðréttingar eru sendar í kerfi viðskiptavinarins sjálfs, svo sem viðskiptakerfi hans (til dæmis Microsoft Business Central) og vefverslun, eftir því sem viðskiptavinurinn hefur sett upp. Vörumyndir í appinu eru sóttar úr vefverslun viðskiptavinarins.

ExOS Labs notar upplýsingarnar ekki í öðrum tilgangi og selur þær hvorki né afhendir þriðju aðilum í markaðsskyni.

Það sem appið gerir ekki

  • Myndavél: myndavélin er aðeins notuð til að lesa strikamerki, hillumiða og QR-innskráningarspjöld, og það gerist í símanum sjálfum. Engar myndir eða myndskeið eru vistuð eða send.
  • Appið hefur ekki aðgang að hljóðnema, staðsetningu, tengiliðum eða myndasafni.
  • Appið birtir engar auglýsingar og notar engin auglýsinga- eða rakningarauðkenni.
  • Appið inniheldur engin greiningar- eða villutilkynningatól frá þriðju aðilum.
  • Appið rekur ekki ferðir þínar á milli forrita eða vefsíðna annarra fyrirtækja.
  • Upplýsingar þínar eru hvorki seldar né afhentar þriðju aðilum í auglýsinga- eða markaðsskyni.

Öryggi

Öll samskipti milli appsins og netþjónsins fara um dulkóðaðar HTTPS-tengingar. Lykilorð og PIN-númer eru aðeins geymd sem tætigildi og innskráningartókinn er geymdur í öruggri geymslu símans.

Varðveisla gagna

Aðgangsupplýsingar, vinnuskráningar og notkunarskrár eru geymdar á netþjóni viðskiptavinarins á meðan viðskiptavinurinn heldur aðgangi þínum, eða þar til viðskiptavinurinn eyðir þeim. Ósendum notkunarfærslum í símanum er eytt í síðasta lagi eftir 30 daga.

Réttindi þín

Um vinnsluna gilda persónuverndarreglugerð ESB (GDPR) og lög nr. 90/2018 um persónuvernd og vinnslu persónuupplýsinga. Þú átt rétt á aðgangi að þeim persónuupplýsingum sem geymdar eru um þig og á að fá þær leiðréttar eða þeim eytt. Þú getur einnig andmælt vinnslunni eða óskað eftir að hún verði takmörkuð.

Til að nýta þessi réttindi skaltu hafa samband við vinnuveitanda þinn eða ExOS Labs. Þú átt jafnframt rétt á að leggja fram kvörtun til Persónuverndar (personuvernd.is).

Breytingar á stefnunni

Við kunnum að uppfæra þessa stefnu þegar appið breytist. Dagsetningin efst sýnir hvenær stefnan var síðast endurskoðuð og breytingar eru birtar á þessari síðu.

Hafðu samband

ExOS Labs ehf., Skeiðarvogi 21, 104 Reykjavík.

Spurningum um þessa stefnu eða persónuupplýsingar þínar má beina á [email protected].