Aðstoð við ExOS Chat

Við erum hér til að hjálpa. Sendu póst á [email protected].

Hvað er ExOS Chat

ExOS Chat er smáforritið fyrir ExOS. Í því getur þú spjallað við erindreka fyrirtækisins þíns, samþykkt eða hafnað aðgerðum sem þeir leggja til og hlustað á stuttar hljóðsamantektir um það sem skiptir rekstur þinn máli.

Aðgangur

ExOS Chat er fyrir fyrirtæki sem nota ExOS. Ekki er hægt að skrá sig sjálfur. Kerfisstjóri ExOS hjá fyrirtækinu þínu stofnar aðganginn og gefur þér vistfang netþjóns fyrirtækisins.

Til að skrá þig inn opnar þú appið, slærð inn vistfang netþjónsins og netfangið þitt og svo 6 stafa kóðann sem við sendum þér. Ef þú hefur bætt við staðfestu símanúmeri getur kóðinn borist með SMS.

Hvernig færðu aðstoð

Sendu póst á [email protected]. Taktu fram hjá hvaða fyrirtæki þú ert og hvað þú varst að reyna að gera.

Spurningum um persónuupplýsingar má beina á [email protected]. Persónuverndarstefna ExOS Chat er á exos.is/chat/privacy.

Ég fékk engan innskráningarkóða

Kóðar gilda í 10 mínútur. Athugaðu ruslpóstmöppuna og að þú hafir slegið inn netfangið sem fyrirtækið notar fyrir aðganginn þinn. Ef kóðinn berst samt ekki skaltu biðja kerfisstjóra ExOS að athuga netfang eða símanúmer á aðganginum þínum, eða senda póst á [email protected].

Hvaða netþjón á ég að slá inn?

Sláðu inn vistfang ExOS netþjóns fyrirtækisins þíns. Kerfisstjóri ExOS hjá fyrirtækinu gefur þér það.

Hvernig eyði ég aðganginum mínum eða gögnum?

Aðgöngum er stýrt af fyrirtækinu þínu. Biddu kerfisstjóra ExOS að eyða aðganginum, eða sendu póst á [email protected] frá netfanginu sem tengt er aðganginum. Nánar á exos.is/chat/privacy#delete.